Hiti =)
30. júlí 2008 klukkan 19:39
Fjórtán + átta vaktir eftir.
Erum við að tala um hita ?! Æðislegt að fá gott veður, hefði verið mikið betra ef ég hefði verið að vinna úti, eða bara skunda upp esjuna með Sólveigu. En ég eyddi deginum á Landspítalanum í Fossvogi, nánar tiltekið á B-7 þar sem Gigtarteymi, Innkirtlateymi og Lungnateymi halda sig þessa dagana. Stór og rúmgóð deild með fullt af gluggum, svölum og litlum viftum, gluggarnir eru pinkulitlir og bara opnanlegir til hálfs, það er bannað að opna svalarhurðir og vifturnar eru 4 talsins og einungis ein á ganginum og ein inni á kaffistofu. Svo er einhverra hluta vegna ekki hægt að "slökkva" á ofnunum svo að það var vægast sagt heitt í dag !!
Svalarhurðini inni á kaffistofu var samt opnuð í dag, þrátt fyrir reglur gegn því, ákaflega litlar líkur á að sjúklingar álpist þar inn og ákveði að láta reyna á flughæfileikana. Eftir smá stund kom geitungur inn og ákaflega hugrakkur sjúkraliði ákvað að rota hann með mogganum, en hann lét það ekki á sig fá og fór að leita að heppilegum stungustað en hún veifaði mogganum aftur og út fór hann og hurðinni lokað á eftir. Eftir hádegi var ákveðið að opna hurðina aftur og það gerði engin árás svo að það var talið óhætt. Ég og Inga María komum okkur því vel fyrir í stólum og ætluðum að "worka-tanið" en kom þá ekki bara geitungur og "rak" okkur inn og eftir það var hurðin lokuð !! =)
*Heitaheita Jófríður* :P

http://ljufa-anna.bloggar.is
AnnA
Haha.. Skemmtilegur dagur=) En það lítur þá út fyrir það að þú verðir eins hvít og í upphafi sumars? :/ Eða hvað?
#1
30. júlí 2008 klukkan 20:32
#2
30. júlí 2008 klukkan 21:01
Hanna Kristín og bumbubúi ;)
ógeðslegir geitungar!!
Hlakka til að sjá þig!! Er farin að telja niður dagana kaupa kaupa kaupa hehe ;p

#3
02. ágúst 2008 klukkan 00:58
paley
híhíhí bíddu bara þangað til þú ferð upp í víðines í hita, það er jakk ;)
#4
02. ágúst 2008 klukkan 12:03
Erla
sakna þín ógó mikið núna! langar í jófríðar og erlu stund!:(
#5
20. ágúst 2008 klukkan 09:30
Jæjja Jófríður nú máttu alveg fara að blogga!!
#6
28. ágúst 2008 klukkan 16:32