þú verður bara að koma oftar í heimsókn! og já ég er búin að fá vinnu á Tikk Takk, og það verður OTH kvöld bráðum heima hjá okkur:)Eitthvað
18. janúar 2009 klukkan 21:24
Það snjóar endalaust hérna á Akureyri og það vil svo “skemmtilega” til að ég og Sindri erum á “snjómokstursvakt”. Við reynum samt að skipta því frekar jafnt ég hef s.s. mokað 1x og Sindri svona 3-4x =)
Ég ákvað að skella mér á Gravity námskeið á Bjargi, þetta er fokk erfitt og ég er loksins laus við strengina núna (síðan á miðvikudag) finnst reyndar ennþá frekar vont að rétta hendurnar upp fyrir höfuð. Þetta er samt þvílíkt stuð, maður liggur á bekk og annaðhvort ýtir sér upp eða togar sig upp með böndum eða handföngum og svo er maður líka á hvolfi, hljómar kannski ekki skemmtilega en kemur á óvart. Ég er samt ekki alveg að fíla það hvað ég er mikið yngri í hópnum, þetta eru allt konur og þær eru allar svona 45+ og allar mikið betri en ég !!
Ég er svo vonandi á minni síðustu önn í VMA, það var tvísýnt þar sem ég á eftir 3 íslenskuáfanga en get ekki verið með 3 íslenskuáfanga í töflu, held að ég megi bara samlesa 2, þannig að ég er í 303 og 403 í dagskóla og ákvað síðan á fimmtudaginn að skrá mig í 503 í fjarnámi í FÁ. Þannig að ef mér tekst að komast í gegnum þessa þrjá + alla hina áfangana þá er ég nokkuð góð. Þá get ég meira segja orðið útskriftarefni aftur =)
En annars bara verð ég voða fúl og tek einn áfanga á næstu önn =( Þetta verður samt frekar strembið tek alla bókmenntasögu eins og hún leggur sig. Eða frá landnámsöld til siðaskipta, frá siðaskiptum og fram yfir aldamótin 1900 og svo bókmenntir frá 1900.
Ég hef annars verið voða einmana á þessu ári =/ þó að Sindri minn sé frábær skemmtun, en mig langar að hitta stelpur..til að tala um Sindra =P eða bara slúðra um ekki neitt. Ma-vinkonurnar eru í prófum svo að ég hef ekki viljað trufla þær í lærdómnum og ég á ekki margar VMA-vinkonur. Get örugglega talið á annarri hendi fólkið sem ég hef kynnst í VMA á þessum 3,5 árum sem ég hef verið þar. =P Ég er voða félagslynd maneskja !! =) En ég þarf líklega bara að bíða í rúma viku eftir að getra sluðrað almennilega, þá byrjar MA aftur eftir “fríívikueftirpróf”. =) Þangað til verður Sindri gamli bara að duga og auðvitað Arnheiður og Finna (er með þeim í sitthvorum áfanganum) og auðvitað Hlynur =)
En ég ætla að sýna dugnað og klára að læra =)

http://erlarun.bloggar.is
þú verður bara að koma oftar í heimsókn! og já ég er búin að fá vinnu á Tikk Takk, og það verður OTH kvöld bráðum heima hjá okkur:)#1
20. janúar 2009 klukkan 20:25
Erla mín þetta er í 3 skipti sem þú segir mér að þú sért búin að fá vinnu á Tikk Takk :P og svo getur þú líka bara komið oftar í heimsókn :P
#2
21. janúar 2009 klukkan 15:45
Jááá.. OTH kvöld! Þú mætir þá :D Hlakka svo til :P
#3
22. janúar 2009 klukkan 21:57
Ég er samt búinn að horfa þetta OTH sem er að byrja alveg að þættinum sem var sýndur úti síðasta mánudag =) #4
22. janúar 2009 klukkan 22:30
Jófríður þú mátt líka alveg fara að koma upp í sveit og heimsækja okkur!!! Sakna þín ekkert smá!
#5
23. janúar 2009 klukkan 16:33
