Auglýsing

Klukkan

SUMARFRÍ =)

15. maí 2008 klukkan 10:29
Já, Jófríður er loksins komin í sumarfrí =) Kláraði síðasta prófið fyrir u.þ.b. klukkutíma.
Mér hefur annars gengið nokkuð vel í prófununum og hef hingað til náð öllu. =) gleði&fjör.

Á morgun ætla ég svo að bruna við fyrsta tækifæri heim og njóta þess að vera í sumarfríi í 3 daga =) á mánudaginn kemur svo stóra stundin..jófríður litla flytur til RVK, byrja svo að vinna  klukkan 8 á þriðjudagsmorgni á lungnadeild, landspítalans í Fossvogi  =) Ég fór til RVK síðasta þriðjudag og fékk þá að sjá deildina og ekkert nema deildina, veit þar af leiðandi ekki hvar ég á að fara inn á morgnana, hvar á að fá föt og hvar ég á að skipta um föt, en konan sagði að ritarinn myndi redda þessu þegar ég kæmi !! Þar að segja ef ég finn starfsmannainnganginn inn í húsið =) *spennó* og já svo ætlar konan að senda mig með leigubíl eitthvert niður í bæ til að láta taka mynd af mér fyrir auðkenniskortið, Páley sagði að það væri einhver staðar niðri í kjallara þar sem að lík eru krufin, svo að mig hlakkar voðavoða mikið til að fara þangað EIN !!

Annars er sumarið frekar þéttbókað svo að það verður lítði húllumhæ þetta sumarið =) Fyrir utan Costa Del Sol

20 maí - 11 júní = vinna
12 júní - 19 júní = Costa Del Sol (með mömmu, ömmu og Sólveigu)
20 júní - 27 júní = vinna
28-29 júní = FRÍ =)

12-13 júlí = FRÍ =) (Húnavaka - hef ég heyrt)
26-27 júlí = FRÍ =)
9-10 ágúst = FRÍ =)

Svo að ég hef engan tíma til að láta mér leiðast í sumar + að ég verð í fjarnámi í íslensku 212 svo að ég geti klárað stúdentinn á næstu 2 önnum =)



Páskafríið búið

26. mars 2008 klukkan 22:06


Afrakstur páskafrísins

Páskafríið leið hjá eins og hendi væri veifað :P En ég skemmti mér samt sem áður voða vel.
Ég borðaði mikið, heklaði og prjónaði mikið og vann smá. Lék svo við öll krúttilegu börnin sem voru í heimsókn.

Það gerðist þó eitt frekar leiðinlegt í þessu blessaða fríi, "nýji" gullfiskurinn dó !! :( Svo að hann þarf ekkert nafn greyið litla.



Það fæddust tvö börn eða tveir strákar í þessu blessaða fríi. Óskar & Hafdísar strákur fæddist 16 mars og Rebekku & Dodda strákur 24 mars =) Til hamingju öll =)




Tími á blogg ??

12. mars 2008 klukkan 14:52


Jæja, nokkrir dagar hafa liðið frá síðasta bloggi og ég þarf að læra núna..svo að þetta er tilvalinn dagur fyrir nýtt blogg =) Það merkilegasta síðan síðast er það að ég eignaðist nýjan frænda. Þann 23 febrúar kom voða sætur rauðhærður strákur í heiminn tæpri viku eftir þann dag var hann skírður og fékk nafnið "Einar Gísli" =)
Á myndinni fyrir ofan er einmitt umræddur drengur, nokkurra klukkustunda gamall og hún gullfallega frænka hans hún ÉG.

Það bættist svo líka í barnahópinn okkar Sindra, nýr gullfiskur ákvað að flytja inn til hans Lubba. Hann hefur því miður ekki fengið nafn ennþá en svarar "nýjifiskurinn" . :P
..(á því miður ekki mynd af Lubba og "nýjafiskinum")

Svo styttist óðum í páskafrí og svona til tilbreytingar ælta ég ekki að vinna í þessu fríi mínu, fyrir utan vinnuhelgina mína, og ætla að nota mér það að vera í mikilli slökun. Reyndar þarf ég að gera eins og 2 ritgerðir, en ég hristi það bara úr páskaegginu mínu.

En klukkan tifar óvenju hratt svo að ég ætla að lesa smá yfir skyndihjálparglósur og bók svo að ég standi mig með sóma á 100 spurninga prófinu í kvöld =)






*mússímú*

27. febrúar 2007 klukkan 21:24
Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt..
þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman

Prófíll

  • Nafn: Jófríður Eva Wiium Ragnarsdóttir
  • Netfang: jofridureva@gmail.com
  • Staður: Sveitin/AK
  • Hjúskaparstaða: Föst